Laugardagur 6. Janúar 2005
Ég veit ekki mikið meira en þið um hvað hefur gengið á á Kvíabryggju seinustu daga en þegar ég kom heim núna áðan biðu eftir mér skilaboð, á símsvaranum, frá einum Bloggaranum um að vinsamlegast loka síðuni tímabundið.
Ef eitthvað er að marka seinustu athugasemdina við nýjustu blogg færsluna, þá hefur þetta verið mjög áhugaverður dagur á Kvíabryggju. Hún hljómaði c.a. svona:
Hvaða heimska grey hjá fangelsismálastofun eða dómsmálaráðaneyti dettur það virkilega í hug að halda að þeir finni nettengingu hjá strákunum ?
Að senda 17 manns og 2 af þeim frá ríkislögreglustjóra út af skrifum strákana já það er eitthvað sem fer í skapið á þeim útaf þessari síðu sem er bara FYNDINN af því hún er svo innihaldslaus (ekki illa meint) eitthvað saklaust grín sem skaðar engann en fer greinilega fyrir brjóstið á sumum.
Enda hver hefði búist við því að þessu heimsku DÝR á bryggjuni gætu skrifað já það var gerð RASSÍA í morgunn á bryggjuni en eins og heimurinn veit fannst nú lítið hjá ENGLUNUM á bryggjuni enda bara góða drengi þar að finna sem eru að bæta líf sitt og taka afleyðingum gjörða sinna en jú rétt er það að allir skulu þeir hlíða reglum stofnaninar og það gera þeir en þar sem ég var nú gestur bryggjunar seinasta vor þá mann ég ekki til þess að í reglum standi BANNAÐ AÐ BLOGGA enda ekkert skítið ÞEIR HAFA EKKI NETAÐGANG.
Hvernig dettur þeim í hug að eltast við þetta og það að vernd sé eitthvað að kvarta yfir því að menn kalli þetta barnaheimili þá er það ekkert skrítið vernd er gott mál og ekkert annað hægt að segja en dómsmálaráðaneytið verður að fara að hugsa sinn gang og breyta reglunum eitthvað sem og vernd t.d að skikka menn á AA fundi comon og þú mátt ekki vera úti eftir 6 á Laugardögum og Sunnudögum.
Ég meina hvað er málið flestir eru þetta fjölskyldumenn og helgarnar eru fyrir börninn jæja ég er farinn að tala í hringji en niðurstaðan mín sem er reyndar sú eina rétta er að ríkispakkinn eins og leggur sig ætti að skoða sín eiginn mál og láta þessa síðu mæta algjörum afgangi.
kv:fv Jarl af Bryggjuni
Eftir því sem ég veit best þá er það rétt að "Bloggararnir" á Kvíabryggju hafa engann aðgang að Internetinu, hvað þá að þeir geti sent tölvupóst. Flestir hafa pistlarnir verið lesnir upp í gengum síma og myndirnar hafa allar verið sendar af öðrum aðilum en þeim.
Persónulega get ég ekki séð að neinar reglur, hvað þá lög, hafi verið brotnar með þessu uppátæki og ég skil ekki hvaða vandamál menn halda að þeir séu að leysa með því að banna föngum að tjá sig á þennan hátt.
Þangað til síðan opnar aftur, sem hún vonandi gerir, þá býð ég ykkur að ræða málin á Fiskisöguni